• Forsíða
  • Um okkur
  • Flotgolf
  • Dúklagnir
  • Verkefni
  • panta okeypis Handbók
  • Tækniblöð
Þú ert hér: Um okkur
Hafa samband | Um okkur
 

Flotlagnir ehf

 FLOTLAGNIR EHF. sérhæfa sig í lagningu flotgólfa auk gólfviðgerða. Fyrirtækið var stofnað til að þjónusta verktaka,stofnanir og einstaklinga .Eigendur Flotlagna ehf.eru Hans Þór Jensson og Sigurður Hansson dúklagningameistarar sem hafa áratuga reynslu á sínu sviði í lagningu flotgólfa, einnig í lagningu endanlegra gólfefna s.s.gólfdúks og teppa.

Metnaður fyrirtækisins hefur frá upphafi verið sá að bjóða einungis fyrsta flokks vöru og þjónustu á samkeppnishæfu verði .Liður í að ná þeim markmiðum var að hefja innflutning árið 2000 á flotefnum frá WEBER-SBD .Weber-SBD er hluti af Weber Ltd group sem er stærsti framleiðandi tilbúinna sementsefna í Evrópu og eru vörur þeirra seldar um allan heim. Þeir framleiða ótrúlega breiða línu efna til mannvirkjagerða sem spannar allt frá flotefnum og iðnaðargólfum,Múrklæðningum,fylgiefnum fyrir stein og náttúruflísar ,múrviðgerðarefnum, málningu,,sprungu og þéttiefna og burðarþolsstyrkinga svo eitthvað sé nefnt.

Gæðastigið á efnunum er mjög hátt og leggur verksmiðjan allan sinn metnað í að efnin séu rétt notuð og við réttar aðstæður.Til þess að ná því veita þeir viðskiptavinum sínum öfluga tæknilega þjónustu bæði í mati á því hvaða efni henta best fyrir tiltekin verkefni auk kennslu í meðferð þeirra og skiptir þá ekki máli hvort viðskiptavinurinn er á Íslandi eða í Kína. Weber-SBD hefur verið á íslenskum markaði í um 25 ár og hefur reynslan sýnt að efnin eiga fullt erindi inn á íslenskan byggingamarkað.

Þegar Flotlagnir ehf tóku við umboði Weber-SBD á Íslandi þá hafði innflutningur frá þeim hingað legið niðri um nokkurt skeið.Fyrst um sinn fluttu Flotlagnir eingöngu inn flotefni og fylgiefni tengd þeim og þá nær eingöngu til eigin nota. Fljótlega var þó byrjað að þreifa fyrir sér með breiðari vörulínu og þá til að selja til verktaka .Mest áhersla hefur verið lögð á utanhúsklæðningar auk flotefnanna sem verður alltaf stór hluti af starfsemi fyrirtækisins.

Klæðningarnar eru sementsbundnar múrklæðningar sem henta afskaplega vel fyrir íslenska aðstæður Þær eru til í tveim styrkleikum bæði til ásetningar á steinull og einangrunarplast auk þess sem yfirborðsefnin er hægt að setja beint á steinsteypta veggi. Úrvalið í litum og útliti er ótrúlega mikið og ætti að henta hverjum og einum.Um er að ræða val um pússningu bæði málaða og litaða auk hefðbundinnar  quarts steiningar og koma steiningarefnin tilbúin í litablöndum. Allir hlutar múrkerfisins koma frá Weber-SBD sem þeir hafa framleitt í yfir 25 ár og hafa verið lagðir meira en 3,5 milljónir fermetrar.

Það eru múrarar sem setja upp kerfið og hefur það verið þeirra skoðun hér að það sé sérstaklega þægilegt í allri meðhöndlun. Einnig hafa verið í boði múrviðgerðarefni, sprunguviðgerðarefni og utanhúsmálning sem hefur 25 ára reynslu á Íslandi. Markmiðið er að auka þennan innflutning á næstu árum verulega og halda áfram að bjóða hágæða vöru sem stenst íslenskar aðstæður þar sem kröfurnar eru miklar.

 

 



Flotlagnir - Akurholt 21 - 270 Mosfellsbæ - S: 8969604 - 8611190 - Fax: 566 8324 - flotlagnir@flotlagnir.is - www.flotlagnir.is